Hún er komin með opnanlega framrúðu og pedala fyrir keyrsluna ásamt pedala sem stjórnar auka glussa úrtakinu á bómuni sem kemur sér einstaklega vel þegar verð er að vinna með tilt skóflu t.d
Ásamt því er hún með sveigju á bómunni bæði til hægri og til vinstri sem gerir hana gífurlega hentuga í þröngar aðstæður.
Þessi myndi henta mjög vel sem aukavél fyrir verktakann og yrði flott í lagnaskurði í grunnum.
Þyngd: 1600kg
Vél: Tveggja cylendra Koop loftkældur með forhitara
Afl: 16,5kw/3600rpm
Eldsneyti: Dísel
Búnaður: Sveigjanleg bóma, Breikkanlegur undirvagn, mekanískt hraðtengi, 40cm tennt skófla og glussastýrður þumall